24.10.2023 | 16:37
Leghafamál rædd á pungberafundi.
Má segja kvennamá og karlamál án þess að tilteknir hópar froðufelli.
Er ekki rétt að nota þessi fáránlegu nýyrði sem þið hafið samþykkt
til notkunar og útrýmt úr bókum kona og karlmaður.
Allt til þess að þóknast háværum örlitlum minnihlutahóp.
Ég bara segi svona í öllum fáránleikanum sem hent er yfir okkur óspurðum.
![]() |
Kvennamál rædd á karlaþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.10.2023 | 07:00
Já já, til góðs fyrir almenning.
Stundum veltur maður fyrir sér á hvaða plánetu eða landi þetta
lið er sem endalaust vill slátra mjólkurkúm landsmanna.
Hvað höfum við lært af fyrri sölum sem áttu að reynast almennings til góðs.?
Ekkert. Ekkert skilaði sér til almennings. Munið símasöluna sem átti að byggja
hátæknisjúkrahús fyrir..?? Ekkert kom út úr þeirri sölu. Þeir peningar einfaldlega
hurfu eins og allt sem kom út úr fyrri bankasölunum. Við vitum að statt og stöðugt
er unnið á bak við tjöldin að ná Landsvirkjun af okkur. Og það mun takst með
þetta fólk innanborðs. Lið sem svíkur og lýgur alla daga og löngu búið að gleyma
þingmannaeiðnum og hlær þegar stjórnarskráin er brotin daglega á þingi.
Ekkert af þessu lið á þingi er lengur að vinna fyrir þjóðina. Flestir, ef ekki
allir uppteknir af sjálfum sér, hælisleitendainnflutning, loginni loftslagsvá og að kynin
séu fleiri en tvö aðalmálið.
Er nema von að allt sé hér meira og minna í klessu.
![]() |
Ég veit að það eru enn þá sár í íslensku samfélagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.10.2023 | 21:23
Hann klikkaði..
Hann hefði betur sótt um sem ofsóttur liðsmaður
Bræðralags múslimma í Egyptalandi eða bara hinsegin
og allar dyr hefðu staðið houm opnar.
Mistök hjá honum að vera heiðarlegur og sækja um sem slíkur.
Skammarlegt fyrir íslendinga að henda út fólki sem vill
sanna sig og reyna allt til að aðlaga sig íslensku samfélagi
og það eftir 6 ár.
Það er eitthvað mikið að þegar kemur að því að velja hverjir
fá að dvelja hér eða ekki.
En ef það getur kostað íslenskt samfélag nógu mikið,
þá ertu gjaldgengur. Annars ekki.
![]() |
Íslenskir lögreglumenn fylgdu Isaac alla leið til Gana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigurður Kristján Hjaltested
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar