31.12.2023 | 13:42
Hvers konar þjóð.?
Að lesa svona klisjur korteri fyrir nýtt ár..
Samfylkingin vill færa fólkið í landinu nær hvert öðru, ekki fjær hvert öðru. Byggja á því sem sameinar okkur en ekki því sem sundrar okkur.
Já einmitt...og svo þetta..
Hvers konar þjóð við viljum vera? Stolt þjóð með sterkt velferðarkerfi? Eða lausbundið samansafn einstaklinga sem eiga lítið sameiginlegt nema að búa á þessari eyju norður í Atlantshafi? Svar okkar í Samfylkingunni við þessum spurningum er skýrt: Sterk velferð, stolt þjóð það er sá valkostur sem við viljum bjóða, skrifar Kristrún.
Höfum heyrt þetta allt áður en hún gleymir því að í boði hennar flokks, VG, Viðreisnar og
Pírata er okkar velferðarkerfi svo gott sem hrunið.
Allar grunnstoðir þjóðfélagsins eru sprungnar og sjóðir uppurnir vegna endalausrar
útgjalda til hælisleitenda iðnaðarins og loftslagstrúar. Við getum ekki hjálpað okkar
smæstu bræðrum og systrum vegna þess að annað fólk sem ekkerrt hefur hér að gera er með
forgang á allar þjónustur og það fríar, á meðan fólkið sem byggði upp velferðarkerfið er
látið súpa svo seyðið. Flott Kristrún að vona svo að engin muni hvernig þinn flokkur
ásamt VG hagaði sér hér eftir hrun. Það er ttreyst á nýja kjósendur sem koma blautir bak við
eyrun úr skólum uppfullir af vinstri slagsíðu enda búið að predika yfir þeim í mörg ár af
vinstra kennara liði. Á þetta er treysta vinstri flokkar.
Stundum er látið eins og það sé óumflýjanleg þróun í nútímasamfélagi að við fjarlægjumst hvert annað. Að samheldnin láti undan og rætur slitni.
Hvernig skyldi nú standa á því..?? Jú, það er vegna þess að ykkur pólitíkusum er ekki
treystandi fyrir einu né neinu. Þið ljúgið af okkur fyrir kosningar og um leið og þær
eru afstaðnar þá gerið þið allt annað.
Kristrún er búin að vera í sukkinu og það þarf að sýna öllum hvernig þessi
lukkudrottning í verðbréfum með 100 milljónir í hagnað hefur hagað sér.
Ef einhver heldur að hún sé að reyna að fara inná þing fyrir almenning,
þá er viðkomanid heldur betur á villi götum.
Hvers konar þjóð við viljum vera? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sigurður Kristján Hjaltested
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 675
- Frá upphafi: 52183
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 456
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Sigurður.
Skemmtilega skrifuð færsla, þar sem þú gerir góðlátlegt grín af nýju vonarstjörnu Samfylkingarinnar, en því miður hverju orði sannara.
Vonandi gefst okkur færi á að finna sannan leiðtoga á þessu ári, sem helgar velferð þjóðarinnar starfskrafta sína óskipta og megnar að færa okkur aftur inn á beinu brautina.
Jónatan Karlsson, 1.1.2024 kl. 07:17
Sæll Jónatan og takk fyrir innlitið.
Já það skulum við svo innilega vona að okkur takist að finna einhvern sem
setur þjóðina í forgang.
Gleðilegt nýtt ár.
Sigurður Kristján Hjaltested, 1.1.2024 kl. 14:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.