18.3.2024 | 23:40
Ég er svo hissa..
Embættismannakerfið er búið að full sanna það
að þar situr fólk sem fær laun fyrir að gera ekki neitt.
Alltaf þegar kemur að eigum almennings, veit vinstri höndin
ekkert um hvað sú hægri er að gera.
Að sjálfsögðu þarf pappírsfyrirtækið KVIKA, sem var búið
til úr ekki neinu, að nota almennings fyritæki til að taka
út milljaröa hagnaö með sýnum sýndarveruleika og bókhaldsblekkingum
svipað og útrásarvíkingarnir gerðu fyrir hrun.
Af hverju eru þessi kaup allt í einu orðin svona nauðsynleg
Landsbankanum..?? Hver fær borgað hvaö og hverjir..??
Enn eitt dæmið um vonlausa stjórnsýslu og spillingu.
Ef TM er svona mikið gulls ígildi, af hverju þá að selja..??
Held að flestir viti svarið viö því en það má bara ekki
segja það. En geri það samt, SPILLING.
Bankasýslan segist ekki hafa vitað af kaupunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sigurður Kristján Hjaltested
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 677
- Frá upphafi: 52185
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 458
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er kallað "AÐ VERA ÁSKRIFANDI AÐ LAUNUNUM SÍNUM" Sigurður Kristján.......
Jóhann Elíasson, 19.3.2024 kl. 05:20
Mikið rétt Jóhann.
Þetta virðist vera í öllu embættismannakerfinu og þykir bara sjálfsagt.
Sigurður Kristján Hjaltested, 19.3.2024 kl. 10:32
Hver er staða bankastjórans núna?
Sigurður I B Guðmundsson, 19.3.2024 kl. 10:46
Flestir sem aldrei gera neitt gera aldrei mistök, ólíkt embættismönnunum okkar, þeir gera bara mistök.
Örn Gunnlaugsson, 19.3.2024 kl. 12:47
Sæll Sigurður Kristján; sem og þeir aðrir þínir gestir !
Get alveg tekið undir; með þjer / sem og þeim Jóhanni Stýrimanni -
Sigurði I B og Erni, hjer að ofan.
En; Sigurður minn.
Hvað; rak þig til þess, að lýsa yfir stuðningi þínum, við Pál
Vilhjálmsson blaðamann og kennara (kl.17:58 í dag) á síðu hans ?
Sem og; hinn mæti Ómar Geirsson Austfirzki:: jafnframt, hjá
Páli ?
Löngu er ljóst orðið; að Páll Vilhjálmsson er orðinn heillum
horfinn í aðdáun sinni / sem skefjalausri hrifningu á Norðlenzka
þjófabælinu (Samherja:: með höfuðstöðvar sínar, á Akureyri og
í Svarfaðardalnum (Dalvík og nágrenni).
Eða; ertu búinn að gleyma Sigurður Kristján, hversu þorri hinna
íslenzku útgerðarfjelaga eru búin að leika okkur landsmenn, sem
EIGUM afurðir fiskimiðanna ? - og ættum að fá okkar mánaðarlega
arð greiddan af þeim, ekki síður en verðmætum orkuveranna, í landinu.
Páll; er búinn að gefa Samherja óbermunum sál sína algjörlega,
og á ekki að njóta nokkurrs hróss, fyrir hraksmánarlegan stuðning
sinn, við þessi skaðræðisöfl, norðan heiða !
Sjáum; örlög miðbæjar Selfoss kaupstaðar - Kristján Vilhelmsson
er búinn að eigna sjer stóran part þess bæjar - og alls endis
óvíst, hvar hann kunni að láta staðar numið, í sinni takmarkalausu
græðgi ! ! !
Með kveðjum samt; þó þykkju þungar sjeu, af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.3.2024 kl. 21:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.