Þess vegna flýg ég með Icelandair.

Ef Icelandair, ætla að taka upp töskugjöld, þá eru þeir búnir

að henda frá sér sinni sérstöðu með það að fólk þurfi ekki að hafa

áhyggjur af því, hvort það sem með tösku eða ekki.

Ástæðan fyrir því að ég vel Icelandair fram yfir önnur

félög í mínum ferðalögum, er einmitt þessi partur af

þjónustu sem þeir bjóða uppá.

Góðar vélar, frábært starfsfólk, frábært afþreyingar kerfi

til að stytta tímmann meðan á flugi stendur og síðast en ekki

síst, þú gengur af því vísu að þegar þú borgar fyrir þitt

flug, þá er ekki eitthvað "auka" sem þú þarft að borga vegna

þess að öll þjónustan er innifalin í því verði sem gefið er upp.

Ef hinsvegar, Icelandair ætlar að taka upp "töskugjöld" líkt og

önnur lággjalda flugfélög gera , verða þeir að skilgreina sig

sem slíka og i framhaldi missa sína sérstöðu sem flugfélag

með betri kosti en aðrir. Komnir bara í sama pakkan.

Vona svo innilega að  svo verði ekki, því þá get ég allt

eins flogið með öðrum.

 


mbl.is Icelandair skoðar töskugjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undur og stórmerki..!!

Það má með sanni segja, að samkvæmt þessari frétt,

hafi Íslendingar með þessu fundið upp hjólið.

Í mörg ár hafa þessar vindmyllur skilað áratuga raforkuframleyðslu

til þeirra sem hafa tekið þær í notkun víðs vegar um Evrópu.

Við þurftum hins vegar, að gera prufu, til þess eins að sannreyna fyrir

öðrum, að hér á landi sé slíkur vindur að þær geti sannað sitt gildi.

Þetta vissu allir, nema þeir sem ráðin hafa..???

Enn og aftur hafa Íslendingar sýnt alþjóð fram á,

að við þurfum alltaf að reyna að finna upp hjólið,

uppá nýtt, þó ferkantað sé. (fjórflokkurinn)

 

 


mbl.is Rekstur vindmylla umfram væntingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segja hræddustu menn..!!

Hvernig væri að þessi drulluskjaldborgar forysta, fari að átta

sig á því, að hún tróð ofan í okkur meðferð, sem meirihluti

þjóðarinnar hafði engvan áhuga á því að taka þátt í.

Er það svo, að minnihluti þjóðar, túlki sig alltaf sem

meirihluta...??

Þetta lið, fékk sinn tíma, og rústaði honum gjörsamlega.

Jóhanna, braut lög. Svandís braut lög. Árn Páll braut lög.

En allt í þessu fínasta fína, vegna þess að það voru þau

en ekki hinir sem brutu af sér.

Vinstra liðið getur og mun aldrei, geta séð, að það hafi

farið með eitthvað rangt.

Virðist eiga vel við í Reykjavík.

Þar er ekkert hlustað á 70.000 undirskriftir og túlkað sem

minnihluta Reykvíkinga...!!

Allt þetta vinstra-samfó lið. Þegar það loksins fær færi á því að

stjórna, treður það lýðræðinu niður í ræsin og þykist svo vera að

vinna fyrir almenning með lýðræðið að vopni.

Sorglegt en satt.

 


mbl.is „Sýnir veikleika ríkisstjórnarinnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í upphafi, skal endinn skoða.

Merkilegt hvað margir ólýðræðissinnar, eru tilbúnir að ljá máls,

þegar kemur að lýðræðinu. Ekkert af þesse fólki fannst athugavert,

þegar þessari umsókn var troðið oní kok á okkur.

Það var gert með vinstri hækjunni, SJS, sem sveik allt til að

ná ráðherra stól eftir öll sín ár á þingi.

Samt er þetta lið svo hissa, að þó meirhluti þjóðarinnar sé á móti þessu

bulli, þá telur þetta fólk sig alltaf vera í meirihluta.

Ef einhvern tímann hefði átt að vera þjóðaratkvæðagreiðsla,

þá hefði hún átt að vera um, hvort meirihluti  þjóðarinnar,

vildi sækja um eða ekki.!!!

Það var ekki gert, og svarti Pétur, situr hjá þessu þykistu liði

sem vill virða lýðræðið.

Kosningarnar seinast, snérust um þetta.

Það er ekket einfaldara.

Lýðræðið kaus þetta bull út og tapararnir verða

að sætta sig við það.

 

 

 

 


mbl.is Telur ríkisstjórnina ekki hafa umboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðum að setja lög á gos..!!

Gosið í Holuhrauni hefur skilað meiru efnum út í andrúmsloftið af

gróðurhúsalofttegundum heldur

en allur skipa og bílafloti Íslendinga frá upphafi.

Eyjafjallajökull gerði slíkt hið sama og gosið í

Vatnajökli 1996.

Við þurfum hundruð ára í mengun á farartækjum til að ná

þessum náttúruspillum.

Eina langtímalausnin fyrir Íslendinga, er þá að setja lög um

það, að bannað sé að gjósa á Íslandi.

Þá fyrst erum við að standa okkar plikt, ekki satt..??


mbl.is Minni losun er eina lausnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað þjóðin er heppinn.

Niðurfærsla til heimila, ásamt kostnaði við það að reikna það út. er

hvorki meira né minna en 427 milljónir samkvæmt orðum BB.

Þingheimur heldur vart vatni yfir þessari ölmusu og vinstri slagsíðan

telur þetta allt of mikið. En ef við skoðum frá hruni, þar sem öll

þessi ömurlega stjórnmálastétt hefur tekið þátt í, og engin undanskilin,

þá lítur dæmið þannig út, að vesalingarnir, heimilin, eru að fá smá

kropp, til þess fela það sem raunverulega gerðisist í

boði allra þeirra sem á aliþingi sitja.

Upphæðin fyrir réttu stuðnigsmenn allra flokka, er meira

en rúmar 10.000 milljónir.

Fyrir þá sem nenna að lesa linkinn,  takið eftir nöfnunum á þeim

sem komnir eru til baka, nýskírðir og þvegnir og saklausir.

En hér er afskriftarlistinn, í boði stjórnmálaelítunar allrar....

http://is.wikipedia.org/wiki/Listi_yfir_afskriftir_fyrirt%C3%A6kja_%C3%AD_kj%C3%B6lfar_efnahagshrunsins_2008

Þetta er Ísland í dag.

 

 

 


mbl.is Niðurfærslan kostað 427 milljónir króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri missir...!!

Mér finnst meiri missir af því fólki sem látið hefur lífið í barátunni

gegn hvers kyns sjúkdómum sem hrjá okkar mannkyn heldur en

en einhver fyrrverandi forseti Þýskalands sem aldrei hefur hendi

í flór snert.

Mikill er söknuður meðal þessa fólks sem telur sig

yfir lýð allan hafin.

Ekki spurning að þarna hefur okkar kynslóð misst merkan mann,

án þess að vita af því.

Samtíðin mun sakna hans, ekki spurning.

En hvaða samtíð..???

Þeirra sem á jötunni hafa lifað til æviloka á  kostnað

okkar borgara, eða þeirra fjöldskyldna sem berjast

í bökkum í að vera til...??

Sé engva samtíð með þessum manni, en hvíli hann í friði.

 


mbl.is „Heimurinn hefur misst mikið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara 6 mánuðir..???

Frábært!! Bara að banna þessa óþokka í 6 mánuði, þá er málið leyst..?? Þjóðverjar og

Svisslendingar sýna og sanna að þeim er ekki sama um verður um almennan borgarar á meðan

olíuauðlindirnar ná að skila sínu til þeirra sem allt hafa. En bara í 6 mánuði......


mbl.is Banna alla starfsemi tengda Ríki íslams
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að leika sér..???

Ef einhvers staðar á landinu, Íslandi, sé hægt að leika sér á

fjórhjólum, endurohjólum ,x-hjólum,  þá er það einmitt í og við Skaftafell. 

Borgar-búa-einfeldningur, sem fylgir þessari frétt,

sem  greinilega  fer sjaldan út fyrir þægindahringinn,

blöskrar hjólfar í sandi og telur að þarna sé verið að framkvæma

myrkraverk á náttúrinni.??? Ef viðkomandi hefði gefið sér tíma til 

að átta sig á staðháttum og hverni nátturan virkar á þeim slóðum

sem honum blöskraði, þá hefði hann áttað sig á því, að þetta

landsvæði, fer undir vatn reglulega þegar hleypur fram í ánum

frá jöklunum. En miðað við hans viðhorf, þá er það ekki spurning

að skipa skal nefnd til að ræða um

hvernig megi komast hjá því að ár renni yfir bakka sína og

fremji þar með umhverfisspjöll, sem aftur þarf að skipa

aðra nefnd til að athuga hvort sú fyrri nefnd hafi virkilega skoðað

hvort að fyrsta nefnd hafi verið skipuð til skoða upphaflegu nefndina.

Það er ekki spurning um það, að viðkomandi áttaði  sig ekki á því hvar

á  landinu hann var...!!!

 

En endilega komið fram með umræðu um þau skaðlegu áhrif sem utanvegaakstur

hefur áhrif á þá staði sem regluega verða flæddir af nátturinni og jafnvel hrauni

og við fáum engvu við ráðið.

Skipum nefnd...

 

 

 

 


mbl.is „Þeir eru bara að leika sér“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hvaða flugvél var hann..???

Hefði hann getað tekið myndirnar án þess að vera í flugvél Flugfélags Ísland..???

Hvað kostar að fara í svona flug til að ná þessum myndum..???

Á ekki Flugféalg Íslands réttin á þeim myndum sem teknar eru út um

gluggana á þeirra flugvélum á þeirra flugleiðum..??

Er hann tilbúinn að borga Flugfélagi Íslands fyrir þann kostnað sem

hann ætlar að stefna þeim, fljúgandi í þeirra flugvélum og aldrei

átt möguleika að ná þesum myndum nema,  í þeirra flugi..??

Listamaðurinn Odee, hefur ekki vængi og heðfði aldrei getað tekið

þessar myndir, nema að nota flugvélar Flugfélags Íslands.

Er hann tilbúinn að borga fyrir það..???

Höfundaréttur er ekki sjálfgefin þegar kemur að svona málum.

Borgaði hann  Flugfélagi Íslands sérstaklega fyrir þessar

myndartökur..???

Ef ekki, þá liggur eignarréturrurinn hjá því félagi sem með hann flaug.

Svo einfallt er það.

M.b.kv


mbl.is Birtu myndir í óþökk Odee
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigurður Kristján Hjaltested

Höfundur

Sigurður Kristján Hjaltested
Sigurður Kristján Hjaltested

Færsluflokkar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 200
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 168
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband