8.2.2012 | 19:13
Eyjaverð..????
![]() |
Bensínið aldrei dýrara í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.1.2012 | 17:01
Almennur stuðningur nágranna...????
![]() |
Lítil áhætta vegna jarðganga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2012 | 17:52
Ég líka...!!!
![]() |
Stenst ekki skoðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2011 | 00:30
Frábært...
Mikið rosalega er ég ánægður með þessa ákvörðun stjórnenda Leifsstöðvar. Það á ekki að leifa svona sölu á einhverjum landsafurðum, sem hafa í gegnum aldirnar bjargað okkur frá hungri. Bíð spenntur eftir að sjá þegar loksins verður bannað að selja í hennar hátign "Leifstöð" rollu og lambakjöt. Get ekki hugsað mér að litlu lömbin hætti að leika sér um lundir og haga. . Einnig villl ég sjá hjá hennar hátign "Leifstöð", algjört bann við harðfiski af hvaða ættum sem er og einnig allskonar unaðssmyrlsum unnar úr íslenskri nátturú. Jafnframt vill ég að strax verði tekið fyrir það að fólk leggi sér lýsi til munns. Fleiri ósiðsamleg uppátæki þessarar ágætu þjóðar, sem gert hefur han að þjóð, gæti ég nefnt. En við skulum ávallt hafa það að leiðarljósi,.. Að þegar útlendingar koma hingað til lands, þá skal það tryggt með öllum ráðum að hennar hátign "Leifstöð" sé eins og Wal Mart heim að sækja. Fyrst þá, er Ísland orðið svolítið "National"..
![]() |
Hætt að selja hvalkjöt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2011 | 06:13
Enn einn aumingjaskapurinn
Nú held ég að þessir aumingjar sem á Alþingi sitja hafi nú endanlega sannað fyrir alþjóð hvurslags hyski það er. Nei, auðvitað eru þessir ræflar ekki hræddir við almenning....!!!!! Hvað þá..??? Er þetta ekki fólkið sem telur okkur trú um það að það eigi að virða hefðir á sama tíma og þau breyta eftir eigin geðþótta þegar það hentar þeim. Nei, þetta fólk heldur að það slepppi við mótmælin, en vegna þessarar ákvörðunar verða þau ennþá meiri. Þetta er eins og slökkva eld með olíu. Losum okkur við allt þetta pakk og þá meina ég alla sem komið hafa að stjórn landsins sl.10 ár. Það á ekki skilið eftirlaun fyrir að hafa komið okkur í þessa stöðu sem við erum í. Nýtt Ísland með nýju fólki.
![]() |
Flýta setningu Alþingis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.7.2011 | 20:21
Á kostnað almennings..?
Ekki veit ég hverju það mun áorka fyrir okkur almenning á Íslandi þessi för Össurar til Gasa og Vesturbakkans. Er þetta einhver skylda að þurfa að fara þarna niður eftir og eyða stórfé..? Man ekki betur en að Ingbjörg Sólrún svilkona hans hafi farið þarna líka og skildi það ekki neitt eftir sig. Það er eins og það þurfi að eyða peningum í allskonar vitleysur heldur en í það sem skiptir máli hér á landi. Við eigum enga samleið með þessu fólki og efast ég stórlega að það vilja það yfirleitt, nema þá helst að þiggja peninga.
Kveðja Sigurður
![]() |
Össur fer til Gasa og Vesturbakkans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2011 | 20:10
Að standa saman.
Ekki minnist ég þess að FÍA hafi látið í ljós neinar skoðanir á því þegar lög voru sett á verkfall flugvirkja forðum. Greinilegt er að ekki er sjálfgefið hverjir eiga í hlut. Á þeim tíma voru hér 11 flugfélög sem flugu til og frá landinu, en samt var látið af því liggja að flugvirkjar væru að vinna svo gott sem hryðjuverkabrot á því að reyna að standa á rétti sínum. Samt var Icelandair "Einkahlutafélag". Því miður er það þannig innan flugstéttarinnar, að þegar kemur að flugmönnum, þá er allt tínt sem til er og óréttlátt gagnvart þeim og þeir einir telja á sig brotið. Aðrir í fluggeiranum eru bara ekki með...??? Ekki fá þeir samúð frá þeim stéttum sem þeir telja fyrir neðan sína virðingu í flugheiminum. Hins vegar ber að þvi að gæta að allur fréttaflutningur gengur út á það að miða laun flugmanna og flugvirkja við hæstu laun embættismanna, sem að í þessu tilfelli þurfa ekki að hafa neina menntun, reynslu eða ábyrgð til að sinna því embætti sem þeir eru í . Ég væri til í að vera með forsætisráðherralaun og þurfa ekki að taka neina ábyrgð á því sem ég geri. Tala nú ekki um ríkistryggð eftirlaun uppá mörghundruð þúsund krónur. Menntunarkröfur flugvirkja og flugmanna og ábyrgð eru slíkar að verði mönnum á mistök þá er refsingin slík, að þeirra getur beðið allt að margra ára fangelsi. Ekki sé ég ómenntaða stjórnmálamenn þurfa að axla slíka ábyrgð með öll sín fríðindi á kostnað almenings. Hvernig væri nú að umræðan um deilur flugstétta hjá Icelandair, snérist um það, af hverju þetta flotta félag "Icelandair" getur ekki samið við sitt starfsfólk án þess að hanga í pilsfaldinum á feðaþjónustunni og ríksstjórn með beiðni um neikvæðan fréttaflutnig og lagasetningu, eins og það sé bara sjálfgefið að þvi að "einkahlutafélagið Icelandair" á í hlut. Er ég kannski bara einn með þessa skoðun...????
Stöndum saman allir í fluggeiranum.
Kveðja Sigurður
![]() |
Einstaklega frekjulegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
17.12.2010 | 10:45
Skiptir engu máli.
Ég held að það sé tími til kominn fyrir almenning í þessu landi að átta sig á hvað það raunverulega þýðir fyrir Ísland að ganga í þetta aumingjabandalag. Bretar og Hollendingar geta bara átt sínar skoðanir því það er hvort eð er ekkert verið að fara að ganga í þetta bandalag. Ríkistjórnin ætti að sýna sóma sinní því að láta það verða sitt seinasta verk og afturkalla þessa beiðni og spara þar með tugi milljóna sem verið er að eyða í þetta bull, vitandi að því að almenningur hefur ákkurat engan áhuga á því að fara þarna inn.
Kveðja.
![]() |
Skilyrði að Íslendingar hætti hvalveiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2010 | 08:20
Ef þú kannt að stela, kanntu að fela.
Þetta er eitt það ömurlegasta sem ég hef séð hjá þessum "Sérstaka Saksóknara" að fara nú af stað tveimur árum eftir hrun og þykjast vera með einhverjar húsleitir eftir að þessir menn stóðu með pappírstætarana margar nætur efitr hrun til að fela eftir sig slóðina. Sorglet er að sjá hvernig almenningur hér á 'Islandi er blekktur hvað eftir annað með sykurhúðuðum aðgerðum bara til þess eins að skapa ró. Hér verður ekkert nýtt Ísland, sömu aðilar og voru í bönkunum fyrir hrun eru búnir að koma sér fyrir aftur og alveg eins gott fyrir almenning að viðurkenna það strax og hætta að vona að eitthvað nýtt muni gerast. Það verður bara ekki þannig.
Kveðja.
![]() |
Segir rannsakendur í veiðiferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.10.2010 | 22:41
Að þora að tala íslensku.
Gott hjá henni Margréti að þora að segja það sem almenningur hefur talað um mjög lengi og það er einmitt að sjá þessa hræsnara inni á þingi hefja sjálfa sig upp á "háttvirtum og hæstvirtum" ávörpum sem engvir nema þá helst þeir sem þannig tala, trúa því í heimsku sinni að þeir séu í rauninni eitthvað yfir aðra hafðir. Þetta fólk er allt í vinnu hjá mér og ykkur sem þetta lesið og gleymið því ekki að ef einhverjir ættu að nota þessi ávörp, væri það þingheimur til okkar sem veitum þeim þessa vinnu.
Háttvirtu og hæstvirtu samborgarar. Látum þetta fólk sem er í vinnu fyrir okkur, vinna fyrir okkur, en ekki einhverja fáa klíkuhópa sem mergsogið hafa þessa þjóð í áranna rás.Og ef þetta fólk hefur ekki dug til þess að vinna fyrir almanna hagsmuni, þá á það ekkert erindi inná þing.
Kveðja.
![]() |
Hætt að segja háttvirtur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigurður Kristján Hjaltested
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 149
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 131
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar